Skilmálar þessir gilda um notkun á vefsíðunni Vinnana.is og allri þeirri þjónustu sem þar er boðin. Með því að skrá sig sem notanda eða nýta þjónustu Vinnana lýsir notandi því yfir að hann hafi kynnt sér skilmála þessa, skilið efni þeirra og samþykkt þá í heild sinni.
Samþykki skilmálanna er skilyrði fyrir notkun þjónustunnar.
Vinnana ber ekki ábyrgð á því að notendur séu lögráða, fjárráða eða sjálfráða né að þeir búi yfir þeirri reynslu eða þekkingu sem þarf til að nýta þjónustuna á ábyrgan hátt.
Vinnana: Kerfið, vefsíðan Vinnana.is og Vinnana ehf. sem eigandi og rekstraraðili þjónustunnar.
Notandi: Einstaklingur, fyrirtæki eða verktaki sem nýtir þjónustu Vinnana til að auglýsa eða kaupa þjónustu.
Þjónustan: Miðlun auglýsinga þar sem notendur bjóða fram vinnu eða auglýsa eftir þjónustu.
Prófíll: Upplýsingar sem notandi setur sjálfur fram á Vinnana.is.
Notkun þjónustunnar skal takmarkast við lögmætar og eðlilegar athafnir.
Notandi er persónulega ábyrgur fyrir öllu efni sem hann birtir á Vinnana.is, þar með talið auglýsingum, myndum og skilaboðum. Notandi skuldbindur sig til að sýna öðrum notendum virðingu og tillitssemi í öllum samskiptum.
Óheimilt er að:
birta ólöglegt, villandi, ósæmilegt eða móðgandi efni
auglýsa ólöglega vöru eða þjónustu
veita rangar eða villandi upplýsingar
Notandi skuldbindur sig til að halda upplýsingum á prófíl sínum réttum og uppfærðum.
Notandi skal skrá sig undir sínu eigin nafni og veita réttar persónuupplýsingar. Vinnana áskilur sér rétt til að loka aðgangi notanda ef grunur vaknar um rangar eða falsaðar upplýsingar.
Verði Vinnana var við mögulega refsiverða háttsemi áskilur fyrirtækið sér rétt til að tilkynna slíkt til viðeigandi yfirvalda eftir atvikum.
Myndbirtingar eru valkvæðar. Séu myndir birtar skulu þær vera:
andlitsmyndir notanda, eða
myndir sem tengjast starfsemi hans
Óviðeigandi eða ósæmilegar myndir verða fjarlægðar án fyrirvara. Ítrekuð brot geta leitt til lokunar aðgangs.
Vinnana áskilur sér rétt til að birta auglýsingar notenda, að hluta eða í heild, á Vinnana.is og á samfélagsmiðlum í markaðslegum tilgangi. Vilji notandi ekki slíka birtingu skal hann tilkynna það skriflega á vinnana@vinnana.is.
Umsagnir skulu byggðar á raunverulegri og persónulegri reynslu. Komi í ljós að umsögn sé villandi, ósanngjörn eða ekki byggð á eigin reynslu áskilur Vinnana sér rétt til að fjarlægja hana, að hluta eða í heild.
Vinnana áskilur sér rétt til að nýta umsagnir í kynningar- og auglýsingaskyni. Umsagnir endurspegla skoðanir notenda en ekki Vinnana sjálfs.
Vinnana er ekki aðili að samningum milli notenda. Kaup og sala þjónustu fara alfarið fram á ábyrgð þeirra aðila sem eiga í viðskiptum.
Vinnana:
ber ekki ábyrgð á gæðum eða framkvæmd þjónustu notenda
ber ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni sem kann að verða vegna viðskipta milli notenda
skoðar ekki efni auglýsinga fyrirfram
Notendur nýta þjónustuna alfarið á eigin ábyrgð.
Notendur sem taka að sér verkefni bera sjálfir ábyrgð á skilum skatta og annarra lögbundinna gjalda til skattyfirvalda.
Vinnana býður áskriftir samkvæmt gildandi verðskrá á vefsíðunni.
Áskrift er innheimt mánaðarlega
Hægt er að segja upp áskrift í stillingum notanda eða með tölvupósti
Uppsögn skal berast að minnsta kosti 3 dögum fyrir næsta gjalddaga
Greiðslur fara í gegnum viðurkenndan greiðslumiðlara. Vinnana geymir ekki greiðslukortaupplýsingar notenda.
Áskriftargjöld eru ekki endurgreidd nema í undantekningartilvikum.
Vinnana áskilur sér rétt til að loka aðgangi notanda tafarlaust ef brot gegn skilmálum eiga sér stað, án fyrirvara.
Notandi getur sagt upp aðgangi sínum hvenær sem er. Við lokun aðgangs verða auglýsingar fjarlægðar og persónuupplýsingar unnar samkvæmt persónuverndarstefnu.
Vinnana ber ekki ábyrgð á vanefndum sem rekja má til óviðráðanlegra atvika, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, bilana eða annarra atvika sem fyrirtækið ræður ekki við.
Vinnana áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Breytingar verða tilkynntar notendum með tölvupósti með minnst 7 daga fyrirvara.
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ágreiningi skal vísa til íslenskra dómstóla með varnarþing í Kópavogi.
Vinnana er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga.
Vinnana vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 og GDPR.
Unnar upplýsingar geta verið:
nafn, kennitala, netfang, símanúmer
IP-tala, vafrategund, stýrikerfi
notkunarupplýsingar á vefnum
Upplýsingar eru eingöngu notaðar í rekstri þjónustunnar og eru ekki afhentar þriðja aðila nema skylt sé samkvæmt lögum.
Notendur eiga rétt til:
aðgangs
leiðréttingar
eyðingar
andmæla vinnslu
kvörtunar til Persónuverndar
Vinnana notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og greina notkun vefsins. Notandi getur hafnað vafrakökum í stillingum vafra.
Skilmálar þessir tóku gildi 1. janúar 2026 og voru síðast uppfærðir 2026.
©